Skipulagssvæðið er innan frístundabyggðasvæðis F61, í landi Munaðarness, skv. samþykktu Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. Deiliskipulagssvæðið er á Engjaási í landi Munaðarness og tekur til 1,8 ha svæðis. Innan svæðisins eru skilgreindar tvær frístundalóðir. Landið hallar til suðausturs, í átt að Norðurá. Aðkoma að svæðinu er um núverandi veg sem heitir Kýrholtsás, sem tengist héraðsvegi að Munaðarnesi (5294). Vegurinn Kýrholtsás er innan deiliskipulagssvæðis. Hitaveitulögn liggur meðfram lóðunum á móti suðaustri, en að öðru leiti er aðliggjandi land óraskað. Á aðliggjandi landi eru engar deiliskipulagsáætlanir í gildi.
Markmið og forsendur skipulagsins:
Skipulagið er ætlað að skapa ramma utan um heildstæða frístundabyggð tveggja lóða og að landnýting sé eins hagkvæm og kostur er, sem lýsir sér í því að núverandi vegur er nýttur og ekki þörf á nýrri vegalagningu með tilheyrandi jarðraski. Landeigandi hyggst halda áfram uppbyggingu sem staðið hefur yfir í áratugi og nýta þannig þá auðlind sem landið er í sjálfum sér og fylgja línum sem lagðar eru í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Hér er hægt að skoða deiliskipulagið hér http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=6518