Krumshólapartur 2 er 12,5 ha landbúnaðarsvæði, um 8 km norður af Borgarnesi. Deiliskipulagið tekur til fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu þar sem áhersla er lögð á sjálfbæra nýtingu lands og orku, fjölbreytta starfsemi og að uppbygging falli sem best að náttúrulegu umhverfi.
Meginmarkmið deiliskipulagsins er að skapa skýran skipulagsramma fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, ferðaþjónustu, ræktunar og minni háttar raforkuframleiðslu. Stefnt er að því að nýta endurnýjanlega orkugjafa, svo sem sólarorku og vindorku, með það að markmiði að svæðið verði að einhverju eða öllu leyti sjálfbært um rafmagn.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir íbúðarhúsum og aukahúsum, fimm útleiguhúsum fyrir ferðamenn, gróðurhúsum, skemmu og aðstöðuhúsi fyrir ferðaþjónustu. Einnig er gert ráð fyrir ræktun nytjajurta og trjágróðurs á um 4 ha svæði. Uppbyggingin er hugsuð sem fjölbreytt starfsemi þar sem búseta, ferðaþjónusta, ræktun og sjálfbær orkunýting fara saman.
Við skipulagsgerðina var sérstök áhersla lögð á að vernda óraskað votlendi og taka tillit til fornleifa á svæðinu. Í kjölfar fornleifaskráningar voru byggingarreitir færðir til að hlífa skráðum minjum. Jafnframt var aðkomuvegur að útleiguhúsum styttur um 230 m, sem dregur verulega úr raski á votlendi.
Deiliskipulagið leggur þannig grunn að fjölbreyttri og sjálfbærri uppbyggingu á landbúnaðarlandi, þar sem áhersla er lögð á nýtingu endurnýjanlegrar orku, atvinnusköpun og að mannvirki falli sem best að landslagi og náttúrufari svæðisins.
Hægt er að skoða deiliskipulagið hér http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=20770


