Nú í vetur fagna Landlínur ehf. 25 ára starfsafmæli. Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim tíma og margt breyst varðandi tækni, lög, reglugerðir, framsetningu gagna og fleira. Það sem hefur þó ekki breyst er að hjá Landlínum leggjum við allt okkar kapp á að veita góða og persónulega þjónustu hvort heldur sem er að þræða vandrataða stíga skipulagsmálanna, útsetningu punkta á vettvangi, lóðahönnun eða merkjalýsingar.
Við erum lítið fyrirtæki sem byggir á reynslu og þekkingu, höfum staðið af okkur efnahagshrun og heimsfaraldur. Höfum marga fjöruna sopið og vitum að vönduð og skilvirk vinnubrögð skipta öllu máli.
Af tilefni afmælisins skáluðum við og fengum okkur snittur og tertusneið með vinum okkar hérna á Borgarbraut 61. Að sjálfsögðu voru veitingarnar keyptar í Geirabakarí því að í litlum samfélögum skiptir öllu máli að versla í heimabyggð sé þess kostur.
Um leið og við hlökkum til komandi verkefna þökkum við innilega fyrir samstarfið og traustið síðustu 25 ár.


