Í 1. áfanga var tekið fyrir svæðið við lóðamörk í austur, meðfram gangstíg sem liggur milli kirkjugarðs og íbúðabyggðar í Jörundarholti, þar byggðar upp manir, gróðursett og útbúnir áningarstaðir og staðir fyrir sorp og vatnspósta.
Helstu markmið fyrirliggjandi hönnunar var:
- að gera heilsteypt skipulag af full stækkuðum kirkjugarði.
- að skapa vistlegan kirkjugarð til íveru og hugleiðinga.
- að skapa skjól og bæta hljóðvist innan kirkjugarðsins