Fyrirtækið Landlínur ehf. var stofnað árið 2000. Þjónustan liggur í megin atriðum á þremur sviðum sem eru skipulagsmál, landslagshönnun og landfræðitengd verkefni. Viðskiptavinir eru sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar. Fyrirtækið þjónustar alla landshluta en staðsetningar vegna eru flest verkefni tengd Vesturlandi.
Starfsmenn
Verkfræðingur, siv. Ing.
8956254
eirikur@landlinur.is
BS í Umhverfisskipulagi
4351573
lisbet@landlinur.is
Landslagsarkitekt FÍLA
4351571
landlinur@landlinur.is
Landslagsarkitekt FÍLA
4351574
vilborg@landlinur.is
Sjálfbærnistefna Landlína
Starfsmenn Landlína leggja áherslu á að samþætta sjálfbærni í allri hönnun og ráðgjöf með því að taka mið af náttúru, staðháttum og samfélagi, lágmarka umhverfisáhrif og stuðla að bættum lífsgæðum.
Starfsmenn skuldbinda sig til að starfa á ábyrgan og sjálfbæran hátt þar sem jafnvægi er haft á milli umhverfis, samfélags og efnahags. Sjálfbærnistefnan er höfð að leiðarljósi í daglegum rekstri. Stefnan nær til allrar starfsemi fyrirtækisins, þ.e.:
- Innkaupa og rekstrar
- Starfsumhverfis og velferðar starfsfólks
- Vinnuaðferða og þjónustu
- Hönnunar og ráðgjafarverkefna
- Samskipta við viðskiptavini og samfélagið
Allt starfsfólk er hvatt til að tileinka sér stefnuna og taka þátt í stöðugum umbótum.
1. Umhverfi og rekstur
Úrgangur og auðlindir
- Lágmarka sóun og hámarka endurnýtingu
- Flokka pappír, plast, ál, gler, raftæki og blekhylki
- Innleiða flokkun lífræns úrgangs
- Lengja líftíma búnaðar með viðhaldi
Pappír og aðföng
- Nota umhverfisvottaðan pappír (td. EU Ecoloabel eða FSC)
- Draga úr prentun og auka rafræna skjalavinnslu
- Forðast einnota vörur
Orkunotkun
- Fara sparlega með orku og vatn
- Nota orkusparandi búnað og lýsingu
Samgöngur
- Hvetja til vistvænna ferðamáta
- Nýta fjarfundi og styðja við fjarvinnu
- Samnýta ferðir þegar mögulegt er
Innkaup
- Velja vistvænar og vottaðar vörur
- Horfa til umhverfisáhrifa í vali birgja
2. Sjálfbær hönnun og ráðgjöf
Landlínur ehf. leggja áherslu á að sjálfbærni sé órjúfanlegur hluti af allri hönnun og skipulagi.
Í verkefnum skal leitast við að:
- Taka mið af náttúru, landslagi og staðbundnum aðstæðum
- Lágmarka rask og vernda vistkerfi
- Nota staðbundin og vistvæn efni þegar kostur er
- Stuðla að blágrænum lausnum (t.d. meðhöndlun ofanvatns, græn svæði)
- Styðja við líffræðilega fjölbreytni
Samfélagsleg áhrif hönnunar
- Huga að algildri hönnun og aðgengi fyrir alla
- Styðja við heilbrigt og aðlaðandi mannlíf
- Taka tillit til öryggis, vellíðunar og upplifunar notenda
Ábyrg ráðgjöf
- Veita viðskiptavinum ráðgjöf með sjálfbærni að leiðarljósi
- Meta langtímaáhrif lausna
- Hvetja til vistvænna valkosta í verkefnum
3. Samfélag og starfsfólk
- Tryggja öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi
- Stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika
- Styðja við starfsþróun og fræðslu
- Efla vitund starfsfólks um sjálfbærni
- Viðhalda heiðarlegum samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila
4. Stjórnarhættir
- Starfa í samræmi við siðferðileg viðmið og góða viðskiptahætti
- Tryggja gagnsæi og ábyrgð í ákvörðunum
- Setja markmið og mælikvarða í sjálfbærnimálum
- Fylgjast með árangri og birta eftir því sem við á
- Endurskoða stefnuna reglulega
5. Innleiðing og eftirfylgni
- Stefnan er kynnt starfsfólki og er hluti af daglegum rekstri
- Stefnt er að sett eru mælanleg markmið (t.d. úrgangur, orka, kolefnisspor)
- Framkvæmd og árangur er metinn árlega
- Leitað er stöðugt leiða til umbóta
