Deiliskipulagsbreytingin tekur til leikskólans Uglukletts í Bjargslandi í Borgarnesi. Upprunalegt deiliskipulag svæðisins tók gildi árið 2006 og náði til leikskólalóðar og tveggja einbýlishúsalóða við Ugluklett.
Meginmarkmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að skapa forsendur fyrir stækkun leikskólans og fjölgun leikskólaplássa, samhliða því að bæta aðkomu, umferðaröryggi og bílastæðaaðstöðu við leikskólann.
Breytingin felur í sér að tvær fyrirhugaðar einbýlishúsalóðir við Ugluklett 2 og 4 eru felldar niður til að skapa rými fyrir fjölgun bílastæða. Byggingarreitur leikskólans er stækkaður og heimilað byggingarmagn aukið úr 826 m² í 1.404 m², samhliða breytingu á aðalskipulagi. Gert er ráð fyrir sex deilda leikskóla fyrir allt að 150 börn.
Við endurskipulagningu svæðisins er lögð áhersla á bætta umferð og aðkomu með einstefnu um bílastæðin og við leikskólann. Gert er ráð fyrir samtals 60 bílastæðum, þar af tveimur fyrir hreyfihamlaða, auk nýrra gangstétta.
Sérstök áhersla er lögð á að draga úr sjónrænum áhrifum bílastæðanna á nærliggjandi íbúðarbyggð. Skilgreint er gróðurbelti milli bílastæðanna og íbúðalóða við Svöluklett 1 og 3, sem jafnframt getur stuðlað að auknu skjóli. Einnig er gert ráð fyrir möguleikum á blágrænum ofanvatnslausnum innan svæðisins.
Deiliskipulagsbreytingin stuðlar þannig að bættri aðstöðu fyrir börn og starfsfólk leikskólans, auknu umferðaröryggi og fjölgun leikskólaplássa. Uppbyggingin styður jafnframt við þróun Borgarness sem fjölskylduvæns samfélags.
Hægt er að skoða deiliskipulagið hér http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=18882


