Deiliskipulagið tekur til uppbyggingar jarðræktarmiðstöðvar Landbúnaðarháskóla Íslands við Túngötu á Hvanneyri, suðaustan við núverandi bútæknihús skólans. Svæðið er skilgreint sem samfélagsþjónustusvæði í Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010–2022 og er ætlað að styrkja starfsemi Landbúnaðarháskólans á sviði rannsókna og kennslu.
Meginmarkmið deiliskipulagsins er að skapa skýran skipulagsramma fyrir uppbyggingu jarðræktarmiðstöðvar og gróðurhúsa, með það að markmiði að efla rannsóknir, kennslu og þróun á sviði jarðræktar. Jarðræktarmiðstöðin var flutt frá Reykjavík að Hvanneyri árið 2018 og með nýju húsnæði skapast aukin tækifæri til að nýta land og aðstöðu skólans til rannsókna og tilraunastarfsemi.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir allt að 1.500 m² jarðræktarmiðstöð og gróðurhúsum sem geta samtals verið allt að 3.000 m². Við skipulagsgerðina var lögð áhersla á að mannvirki falli vel að umhverfinu og að nýta þá innviði sem þegar eru til staðar á Hvanneyri.
Skipulagssvæðið er innan friðlýsts svæðis í Andakíl, sem jafnframt er Ramsarsvæði og hefur alþjóðlegt verndargildi vegna votlendis og mikilvægra búsvæða fugla, einkum blesgæsa. Við skipulagsgerðina var því sérstök áhersla lögð á að samræma fyrirhugaða uppbyggingu við verndargildi svæðisins. Meðal annars eru settir skilmálar um að lágmarka ljósmengun frá gróðurhúsum og taka tillit til fuglalífs og náttúrufars.
Deiliskipulagið stuðlar þannig að eflingu Hvanneyrar sem miðstöðvar menntunar og rannsókna á sviði landbúnaðar, þar sem áhersla er lögð á að samþætta uppbyggingu, vísindastarf og verndun náttúrulegs umhverfis.
Hægt er að skoða deiliskipulagið hér http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=19086


