Hjólhýsabyggð hefur verið í landi Galtarholts 3 í Borgarbyggð frá því um 1990 og er því um að ræða gamalgróið svæði. Deiliskipulagið nær yfir 8,3 ha svæði.
Meginmarkmið deiliskipulagsins er að skapa skýran skipulagsramma um starfsemi sem þegar er til staðar, bæta aðstöðu og öryggi á svæðinu og tryggja að uppbygging sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir samtals 54 hjólhýsum ásamt tveimur salernishúsum og einu þjónustuhúsi. Sérafnotareitir fyrir hjólhýsi eru afmarkaðir, aðkoma og vegakerfi skilgreind og settir skilmálar um mannvirki og frágang svæðisins. Einnig er gert ráð fyrir uppbyggingu veitukerfa, þar á meðal rafvæðingu svæðisins, sem dregur úr gasnotkun og eykur öryggi.
Sérstök áhersla er lögð á brunavarnir og öryggismál. Samhliða deiliskipulagsvinnunni var unnin viðbragðs- og neyðaráætlun fyrir hjólhýsabyggðina þar sem meðal annars eru skilgreindar flóttaleiðir, viðbrögð við eldsvoða og gróðureldum ásamt leiðbeiningum um forvarnir og öryggi á svæðinu.
Við skipulagsgerðina var jafnframt lögð áhersla á að nýta núverandi innviði, lágmarka rask á náttúrulegum gróðri og varðveita yfirbragð svæðisins. Innan skipulagssvæðisins er einnig gert ráð fyrir sameiginlegum leik- og samkomusvæðum, göngustígum og matjurtagörðum.
Deiliskipulagið stuðlar þannig að markvissri og hóflegri uppbyggingu hjólhýsabyggðarinnar, þar sem áhersla er lögð á bætta aðstöðu, aukið öryggi og tillit til náttúrulegs umhverfis.
Hægt er að skoða deiliskipulagið hér http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=20778



